Skitin aftanákeyrsla
Takk fyrir að vera ekki búin að gefast upp á mér!!!
Ég þykist vita að ég skulda ykkur (sérstaklega) slatta af myndum, m.a. úr hinni mögnuðu Palestínuferð. Þetta kemur vonandi allt með kalda vatninu.
Annars er ég bara að vinna... og að eiga heima í Keflavík. Ég get svo sem ekkert sagt um hvernig það er að búa í Keflavík þar sem ég er aldrei þar nema rétt yfir nóttina. Hef þó einnig verið þar nokkur stormasöm kvöld fyrir framan sjónvarpið. Það er pínu gaman að eiga sjónvarp eftir eins árs sjónvarps-svelt. En án þess að leggja dóm á það hvernig það er að búa í Keflavík þá get ég alveg komið hreint fram með það að það er GLATAÐ að þurfa að ferðast á milli Keflavíkur og Reykjvíkur alla daga. Í morgun var ég í næstum 2 klst á leiðinni í vinnuna. Tók mig yfir klukkustund að komast frá Hafnarfirðinum og á Aragötuna góðu. Allt út af skitinni aftanákeyrslu. Mér líður eins og vinnudagurinn sé tveimur tímum lengur en hann er (enda tekur það mig 4 mínútur að komast í vinnuna af Grandaveginum mínum) vegna þess hve lengi ég er að koma mér til og frá vinnu. Dagurinn í dag verður að öllu óbreyttu 3 tímum lengri. Jæja... allir að vorkenna mér æðislega mikið!
En auðvitað er það algjör lúxus að fá að vera í einbýlishúsi með öllu tilheyrandi, ég á auðvitað að skammast mín fyrir að vera að þessu væli.
Annars ætla ég að fara að taka skurk í þessum myndum mínum. Held samt að það sé búið að læsa myndaalbúminu mínu. Er eitthvað annað gott sem þið þekkið??
P.S. Ætlaði að blogga um ástandið í borginni..... hætti við á síðustu stundu...
P.P.S. Af hverju kemur ekki línubil hér þegar ég set línubil inn á blogger?


<< Home