Í fréttum er þetta helst....
Vitiði... það er bara ekkert eins glatað að vera á lokasprettinum í ritgerðarskrifum eins og ég hélt. Grunar samt að það geti að hluta til verið sökum minnar eigin veruleikafirringar þar sem ég er í raun ekki búin að átta mig á hvað ég á lítinn tíma eftir til að skrifa mikið. Ég er allavega LANGT frá því að missa svefn af stressi. Próftíðin var langt um verri.
Annars erum við búin að vera með hundskottið á neðri hæðinni síðustu tvo daga. Það merkir líka að ég hef ekki skrifað neitt í tvo daga. Það er svaka gott veður hérna og svona orkumiklir hvolpar þurfa mikla hreyfingu. Þegar ég var ekki að taka þátt af fullum krafti í hlaupaátaki Heiðar 2007 þá vorum við með hundinn í göngutúr. Við erum að tala um tvo stutta og einn langan á dag! Báða dagana fórum við í 2.5 klst göngu fyrir kvöldmat. Þegar hundurinn er ekki úti að hreyfa sig þá er hann inni að hvíla sig. Það vill bara svo óheppilega til að ég var líka alveg búin eftir alla þessa hreyfingu og þurfti sjálf að hvíla mig. Hér að neðan er mynd af blessuninni áður en hún fékk langa göngutúrinn sinn.... við skildum hana eftir í garðinum í 2 mínútur:

Frétt vikunnar er að sjálfsögðu sú að Jói er kominn með vinnu hjá Íslenskri erfðagreiningu og er að sjálfsögðu mikil hamingja á heimilinu með það. Það verður svaka þægilegt að vera að vinna nánast í sömu götunni, smellpassar alveg hreint. Það verður reyndar svolítið langt fyrir okkur að fara fyrstu tvo, þrjá mánuðina þar sem við komum til með að búa í Keflavík fram til desember. Ég get nú ekki sagt að ég sé að farast úr spenningi yfir að þurfa að keyra á milli Keflavíkur og Reykjavíkur á hverjum degi en þetta verður annars ágætis tilbreyting og það verður bara gaman að fá að kynnast Keflavík betur. Hmmmm, ætli það sé ekki fín sundlaug þar?Þegar Jói kom heim frá Íslandi um daginn sagði hann mér að hann hefði gleymt vaxinu, sem hann notar alltaf í hárið, á Íslandi. Bætti svo við að það væri ódýrara að raka allt hárið af heldur e að kaupa nýtt vax. Ég hlýddi auðvitað (eins og mér er von og vísa), sótti rakvélina og sparaði okkur nokkra aura. Hér að neðan má sjá afraksturinn... vélin varð sko batteríslaus:

Fjórum dögum seinna datt mér í hug að setja rakvélina í hleðslu og klára verkið. Hér má sjá þann myndarlega:

Í gær fékk ég svakalega skemmtilegt bréf frá henni yndislegu Ásdísi Magdalenu systurdóttur minni. Hún hafði margar fréttir að færa mér, þær langmikilvægustu auðvitað að hún væri fjögurra og hálfs, alveg að verða fimm og að hún væri búin að fá nýjan náttkjól. Bréfið endaði hún svo á þessari frábæru setningu: "Ég hlakka svo til þegar ég sé þig í Króatíu. Þá ætla ég að knúsa þig og kaupa mér hamstur" Undir skrifaði hún svo sjálf: "Bless klukkan kornflex". Með bréfinu fékk svo að fljóta falleg mynd af henni sjálfri 4 og hálfs og Heiði Hrund vinkonu sinni og frænku 5 og hálfs.
En jæja... ég get svarið fyrir að mér finnst ég eigi að vera að gera eitthvað annað en að blogga... samt alveg stolið úr mér.
En jæja... ég get svarið fyrir að mér finnst ég eigi að vera að gera eitthvað annað en að blogga... samt alveg stolið úr mér.

<< Home