Eftir 5 daga hlýt ég að vera fullorðin!
Ööössss, 5 dagar eftir af mastersnáminu, jaaah svei mér þá. Nú glími ég við vandamál sem kemur undantekningalaust upp þegar ég skrifa ritgerð. Hún er alltof löng. Ég er búin að henda út fullt af texta (það var soldið sárt) en ritgerðin er enn of löng. Hún er orðin lengri en hún má vera þegar hún er fullkláruð en samt er ennþá ýmislegt sem ég á eftir að skrifa um. *Andvarp*. Það eru sko takmörk fyrir því sem hægt er henda í viðauka (og þar með telja ekki með í orðafjöldann) en svei mér þá ef ég verð ekki bara að henda ennþá meira af mikilvægum upplýsingum þangað inn.
Annars er ég búin að standa mig vel í að horfa á Six feet under og Sopranos, svona svo ég geti sagst vera dugleg við eitthvað. Annars er alveg merkilegt hvað ég afkasta mismiklu á dag. Sunnudagurinn síðasti var sá afkastamesti í langan tíma hvað ritgerðarskrif varðar. Þann dag hljóp ég samt líka 5.5 km, þvoði glás af þvotti og horfði á FJÓRA þætti af Six feet under. Aðra daga finnst mér ég sitja við tölvuna svo klukkutímum skiptir án þess að koma nokkru í verk. Ég hef hugsað mér að hafa næstu 5 daga eins og sunnudaginn síðasta.
Að lokum vil ég svo gefa sjálfri mér viðurkenningu fyrir leiðinlegustu bloggfærslu mánaðarins! TAKK FYRIR

<< Home