Að spara eða ekki að spara
Af bráðri nauðsyn fór ég inn í fatabúð áðan. Þar fann ég mér tvenn pör af skóm og eina flík til viðbótar á 30 pund. Þótti mér þetta reifarakaup og skundaði ánægð að afgreiðsluborðinu þar sem ég var ekki rukkuð um 30 pund heldur 19!!!! Aldrei tek ég eftir þessum útsöluskiltum og held samt að ég sé að fá allt á svaka góðum díl. Ég fór því út, svaka ánægð með að hafa "sparað" allan þennan pening. Á leiðinni heim keypti ég því rauðvínsflösku sem var svo dýr að það var þjófavörn á flöskunni!


<< Home