Til hamingju Pabbi!
Pabbi ávallt ungur er,
allavega í anda.
Latari hann þó bráðum fer
við að koma sér í vanda.
Fæddur fyrir sextíu árum,
gestir standa í röðum.
Furðar sig á þessum hárum,
sem ekk' eru á réttum stöðum.
Aðstæður kann að nýta sér,
það er ekki flókið.
Á meðan mamma yngri er,
hún hellir romm' í kókið.
Hvílíkur leirburður... það er hugurinn sem skiptir máli pabbi minn. Til hamingju!


<< Home